Yfirlýsing

Ég er alþingismaður. Vinnuveitendur mínir eru fólkið í landinu og til þeirra sæki ég umboð mitt.

Sem kjörinn fulltrúi þjóðarinnar heiti ég að...

  • ...setja hagsmuni þjóðarinnar framar hagsmunum flokksins, sjálfs mín og hvers konar sérhagsmunum.
  • ...flytja mál, tala og kjósa í hverju máli samkvæmt eigin sannfæringu.
  • ...gera í alla staði mitt besta til að standa undir því trausti sem mér er sýnt.

Af virðingu við lýðræðið heiti ég að...

  • ...meta skoðanir og hugmyndir á eigin verðleikum, óháð því hver setur þær fram.
  • ...virða þá sem eru mér ósammála, kynna mér rök þeirra og skilja til hlítar hvar okkur greinir á.
  • ...orða skoðanir mínar þannig að leiði til samstöðu og sátta frekar en sundrungar.

Í anda uppbyggilegrar umræðu heiti ég að...

  • ...byggja skoðun mína á öllum staðreyndum mála, einnig þeim sem ekki henta mínum málstað.
  • ...vera tilbúinn að skipta um skoðun ef nýjar upplýsingar, skilningur eða aðstæður kalla á það - og unna öðrum hins sama.

Jafnframt heiti ég því að hafa í huga að aðrir alþingismenn eru samstarfsmenn mínir – og eru líka hér til að vinna Íslandi vel. Það sem skilur okkur að eru þær leiðir sem við teljum líklegastar til árangurs. Við erum því ekki andstæðingar, heldur samherjar í því að vinna að hagsmunum þjóðarinnar.

Staða mála...

Þann 7. júní 2010 höfðu:

Vertu með...

Gakktu í Facebook-hópinn til að hvetja Alþingismenn til að gangast undir þessa yfirlýsingu. Alþingismenn eru líka hvattir til að ganga í hópinn og gangast þar með undir það sem hér segir, eða lýsa því á annan hátt yfir á opinberum vettvangi.

Dreifðu meðal vina...

Deila á Facebook Deila á Twitter